|
Guðlaug Jónsdóttir matreiðslumaður
Nám í Hótel- og veitingaskóla Íslands og Hótel Sögu. Var valin matreiðslunemi ársins af Klúbbi Matreiðslumeistara við útskrift. Guðlaug starfaði á Hótel Sögu í nokkur ár eftir útskrift og rak síðan ásamt Karli veitinga- og gististað á Nesjavöllum áður en hún fluttist til Ísafjarðar. Þar kenndi hún matreiðslu á matartæknibraut Menntaskólans á Ísafirði í einn vetur. Guðlaug starfaði síðan hjá SKG veitingum frá 1998 - 2007. Hún starfar nú við kennslu í heimilisfræðum við Grunnskólann á Ísafirði.
|