Um SKG veitingar
     Veisluþjónusta
     Myndasafn
     Störf í boði
     Tenglar

Smelltu hér til að fara á Skólamatsvef SKG

 SKG Veitingar ehf.
 Grunnskólanum Ísafirði
 400 Ísafjörður
 Netfang: skg@skg.is
 Vefstjóri: Webmaster
 Sími: 456 4360













Myndasafn SKG veitinga
Veldu myndaflokk til að skoða!
 
Á ferðasýningunni Perlan Vestfirðir sem fram fór í byrjun maí árið 2006 kynntu SKG veitingar sjávarafurðir fyrir 13 Vestfirsk sjávarútvegsfyrirtæki. Tilgangurinn var að kynna ferskleika og gæði afurða fyrirtækja á svæðinu. Talið er að yfir 20.000 manns hafi heimsótt sýninguna og má því segja að starfsfólk SKG veitinga hafi þarna gefið álíka mörgum að borða og það gerir að jafnaði á hverju ári.

Myndirnar voru teknar við undirbúnig í eldhúsi sem SKG veitingar leigðu af fyrirtækinu Krydd og kavíar sem og á sýningunni sjálfri.

Spilavist fyrir starfsmenn og vini Hótels Ísafjarðar og SKG veitinga var haldin sunnudaginn 6. febrúar 2005.
Spiluð var hin hefðbundna "framsóknarvist" og var loftið þrungið spennu. Sumir þóttu standa sig vel en öðrum gekk síður og er jafnvel talið að heimsmet hefði verið slegið í eftirsetu.
Vegleg verðlaun voru í boði fyrir sigurvegara í karla- og kvennaflokki. Einnig voru veitt skemmtileg verðlaun fyrir slökustu frammistöðuna ásamt setuverðlaunum fyrir hinn ókrýnda heimsmeistara.
Boðið var upp á veglegt kaffimeðlæti og kakó í hálfleik og kunnum við þeim er stóðu að þessari uppákomu bestu þakkir fyrir, og vonumst jafnframt eftir því að leikurinn verði endurtekinn fljótlega.

Laugardaginn 13. mars 2004 var haldin sýning á ýmsu er tengist fermingum og fermingarundirbúningi. Fjölmörg fyrirtæki í Ísafjarðarbæ sýndu allt milli himins og jarðar er varðar ferminguna. Fermingarbörn sýndu föt frá Versluninni Jóni og Gunnu og Alda Karlsdóttir sá um förðun. Aðrir sýnendur voru SKG veitingar, Gullauga, Hárkompaní, Verslunin Silfurtorg, Blómaturninn, Hafnarbúðin, Sól og fegurð, Vesturferðir og Skóverslun Leós. Hrafn Snorrason tók myndirnar.

Tónleikar Hunds í óskilum voru frábærir eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru á tónleikunum, sem haldnir voru á sólrisuhátíð MÍ í febrúar 2003

Nýársfagnaður SKG veitinga var haldinn með höttum og knöllum þann 4. janúar 2003. Frábær stemmning var meðal gesta að venju. Veislustjóri kvöldsins Halldór Halldórsson opnaði vefsíðu SKG veitinga formlega.
Guðrún Jónsdóttir og Kammerkórinn við undirleik Huldu Bragadóttur skemmtu veislugestum með frábærum söng og leikrænum tilburðum. Að loknu borðhaldi skutu matreiðslumenn upp flugeldum til heiðurs gestum og dansað var við undirleik Hjónabandsins fram á nótt.
Mydirnar tók Halldór Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir af bb.is

Það var sannkölluð jólastemmning á jólahlaðborðum fyrir fjölskyldur og börn. Bæta þurfti við kvöldi vegna mikillar aðsóknar á þessa skemmtilegu viðburði. Myndirnar tala sínu máli.

Yfir 200 manns sóttu Villibráðarkvöld SKG veitinga síðastliðið haust.

© Hönnun og forritun - Netheimar ehf. 2002 - 2010